21. maí 2026
Listverkfærakista Kviksjár (e. Kaleidoscope Arts Toolkit) er kjarninn í verkefnamiðaðri þátttöku sem breytir sýn Kaleidoscope verkefnisins í raunveruleg verkfæri fyrir ungmennastarfsfólk. Verkfærakistan leggur áherslu á að nota list sem miðil til tjáningar, aðlögunar og valdeflingar ungmenna, en um leið styrkir hún færni og menningarlega hæfni þeirra sem vinna með þeim.
Hvað er listverkfærakista Kaleidoscope?
Listverkfærakista Kaleidoscope er kraftmikil og fjöltyngd auðlind sem sameinar dans, leiklist, tónlist, skapandi skrif, myndlist og handverk og er stuðningur við ungmennastarfsfólk sem virkjar ungt fólk í gegnum óformlega listtengda starfsemi. Verkfærakistan býður upp á ítarlegar æfingaáætlanir, verkefnablöð og skref-fyrir-skref leiðbeiningar, allt hannað til að efla listræna tjáningu, tilfinningalega seiglu og félagsleg tengsl meðal ungmennahópa með fjölbreyttan menningarbakgrunn.
Rannsóknarmiðuð, samþætt verkfærakista
Verkfærakistan byggir á greiningu á þjálfunarþörfum sem 111 svarendur tóku þátt í frá samstarfslöndum, á meðal svarenda voru bæði ungmenni og ungmennastarfsfólk. Greiningin leiddi í ljós færniskort, hindranir fyrir þátttöku og þær tegundir skapandi starfshátta sem virðast vera þýðingarmiklir, aðgengilegir og viðeigandi í menningu. Tryggt er að starfsemin endurspegli reynslu og hægt sé að aðlaga hana að staðbundnum veruleika í Austurríki, Írlandi, Þýskalandi, Kýpur, Íslandi og Portúgal.
Verkfærakistan felur í sér listbundna þátttökuþjóðfræði (ABEE - Art Based Engagement Ethnography) og sameinar þjóðfræðilega hlustun og skapandi iðkun svo að ungmennastarfsfólk geti notað teikningar, flutning, frásagnir og aðrar menningar rannsóknir til að kanna sjálfsmynd, umbreytingar og tilheyrslu á öruggan hátt sem felur í sér þátttöku. Gagnvirkar upplýsingamyndir fylgja verkfærakistunni sem veita sjónrænt aðlaðandi yfirlit yfir lykilhugtök og -aðferðir til notkunar í þjálfun og daglegri starfsemi.
Frá tilraunaverkefni til almennra sýninga
Þegar verkfærakistan hefur verið þróuð og ritrýnd innan samstarfsins verður hún prófuð með hópum ungs fólks í hverju samstarfslandi, sem verður skipt í fjórar lotur byggðar á völdum listgreinum. Þessar tilraunalotur prófa og fínpússa efnið og styðja samsköpun sex listaverka (eins í hverju landi) sem tjá menningu og lífsferil ungs fólks sem verða síðar kynnt á Kaleidoscope hátíðum og í netsýningarrýmum.
Í gegnum þetta ferli virkar verkfærakistan sem brú milli rannsókna, starfshátta og almennrar þátttöku: hún býr til gagnreyndar auðlindir fyrir ungmennastarfsfólk, styrkir við sköpun og umsjón með eigin sögum ungs fólks af innflytjendaættum og skilar varanlegum árangri sem verður aðgengilegur um alla Evrópu eftir að verkefninu lýkur.
Styrkt af Evrópusambandinu (ESB). Þau álit og þær skoðanir sem hér koma fram eru höfundanna sjálfra og endurspegla því ekki endilega álit og skoðanir ESB eða OeAD-GmbH. Hvorki ESB né OeAD-GmbH er hægt að kalla til ábyrgðar vegna þeirra. Verkefni nr.:2024-2-AT01-KA220-YOU-